Við erum fyrsta tungumálaþjónustufyrirtækið á Norðurlöndum sem fær B Corp-vottunina. Það er okkur heiður að fá að vera í liði með Patagonia, Rituals og yfir 9.000 öðrum sjálfbærum fyrirtækjum sem geta skipt sköpum.
B Corp er alþjóðleg sjálfbærnivottun sem veitt er fyrirtækjum sem standast strangt mats- og staðfestingarferli sem framkvæmt er af óháðu stofnuninni B Lab. Í þessu ferli eru ýmsir þættir í rekstri fyrirtækisins metnir ítarlega, þar á meðal starfsmannastefna, stjórnarhættir og félagsleg og umhverfisleg áhrif.