Að hefjast handa
Það er einfalt að byrja að nota þjónustu okkar. Við búum til auðkenni fyrir fyrirtækið þitt og notandaprófíl á innan við fimm mínútum.
Tveir innskráningarkostir eru í boði
- Innskráning í eitt skipti – innskráning með vinnunetfangi.
- Innskráning með notandanafni og aðgangsorði Youpret
Reikningar fyrir túlkanir eru sendir á fyrirtæki sem mánaðarlegir samstæðureikningar í gegnum rafrænt innheimtukerfi. Viðskiptavinir geta farið yfir þau gjöld sem innheimt eru á reikningsyfirliti sínu.
Farsíma er krafist til að geta nýtt þjónustu okkar.
Er túlkun í boði á tungumálinu mínu?
Hægt er að fá túlk á eftirfarandi tungumálum eins og stendur:
arabíska,
eistneska,
enska,
finnska,
íslenska,
lettneska,
litháenska,
pólska,
rúmenska,
spænska,
úkraínska
og þýska.
Við leitum sífellt að nýjum túlkum til að bæta fleiri tungumálum við listann.
Hvernig virka umsagnir?
Að túlkun lokinni er viðskiptavinur beðinn um að gefa stjörnu sem endurspeglar ánægju hans með túlkunina. Hægt er að gefa stjörnu á skalanum 1 upp í 5 og skilja eftir athugasemd í textareitnum.
Stjörnugjöfin gerir Youpret kleift að tryggja bæði viðskiptavinum og túlkum sem besta upplifun. Heildareinkunn túlks er meðaltal allra stjarna sem viðskiptavinir hafa gefið viðkomandi og við úthlutun túlkana forgangsraðar kerfið þeim túlkum sem eru með flestar stjörnur.
Ef túlkunin gekk vel skaltu gefa túlkinum fimm stjörnur. Ef einhver vandamál komu upp við túlkunina geturðu gefið viðeigandi stjörnu og skilið eftir athugasemd í textareitnum. Umsögnin þín verður áframsend á túlkinn nafnlaust.
Hvernig afturkalla ég beiðni um túlkun?
Ef beiðnin hefur ekki verið send geturðu einfaldlega hætt við hana með því að ýta á „Hætta við“.
Ef túlkun hefur verið bókuð geturðu afturkallað beiðnina á flipanum „Væntanlegar bókanir“ í appinu eða í vafra.
Hvernig meðhöndlar Youpret greiðslur?
Oy-greiðslukerfi Youpret sér viðskiptavinum fyrir gagnsæju yfirliti yfir greiðslur í rauntíma. Youpret greiðir túlkum fyrir hverja túlkun og veitir þeim yfirlit yfir allar túlkanir sem fram fóru í mánuðinum.
- 1. Viðskiptavinir greiða Youpret fyrir túlkanir.
- 2. Youpret greiðir túlkum mánaðarleg laun.
Hvernig reiknast verð fyrir túlkun?
Verð fyrir tafarlausa túlkun veltur á tímalengd. Sjá verðskrá: Verðskrá
Tafarlaus túlkun ISK/mín. eða eftir samkomulagi.*
Túlkun bókuð með fyrirvara ISK/klst. eða eftir samkomulagi.*
* Verð eru gefin upp án VSK.
Hvar get ég nálgast kvittanir fyrir túlkunum sem fara fram í gegnum síma?
Kvittanir eru sendar í tölvupósti.
Hvar get ég nálgast samantekt á túlkununum mínum?
Hægt er að sjá allar túlkanir og samantektir á þeim í Youpret-appinu og á vefsvæði Youpret. Einfalt og gagnsætt!
Hvar get ég nálgast yfirlit yfir allar túlkanirnar mínar?
Eftir að hafa skráð þig inn geturðu skoðað allar fyrri túlkanir á síðunni „Túlkanir“.
Hverjir geta séð símanúmerið mitt?
Youpret þarf á símanúmeri viðskiptavina að halda til að geta auðkennt þá og veitt túlkun. Aðeins þeir túlkar sem hafa samband við viðskiptavin í gegnum síma eða myndfund geta séð símanúmer viðskiptavinarins. Við deilum ekki upplýsingum viðskiptavina með utanaðkomandi aðilum.
Ég gleymdi aðgangsorðinu mínu.
Þú getur breytt aðgangsorðinu þínu hvenær sem er á vefsvæði Youpret og hér. Þú færð sendan tengill í tölvupósti sem þú getur smellt á til að breyta aðgangsorðinu þínu.
Tengillinn sem ég fékk til að breyta aðgangsorðinu mínu virkar ekki / Ég fékk engan tengil.
Hafðu samband við þjónustudeildina okkar með því að senda tölvupóst á info@youpret.is eða eða hringja í +358 45 668 8113.
Þjónustu- og tæknideildir Youpret eru opnar allan sólarhringinn.
Ég fann skuldfærslu á reikningnum mínum sem ég kannast ekki við / Margar svipaðar skuldfærslur.
Hafðu samband við þjónustudeildina okkar með því að senda tölvupóst á info@youpret.is eða eða hringja í +358 45 668 8113.
Þjónustu- og tæknideildir Youpret eru opnar allan sólarhringinn.
Fór eitthvað úrskeiðis á meðan á túlkun stóð?
Hafðu samband við þjónustudeildina okkar með því að senda tölvupóst á info@youpret.is eða eða hringja í +358 45 668 8113.
Þjónustu- og tæknideildir Youpret eru opnar allan sólarhringinn.