Okkur dreymir um heim þar sem tungumálið kemur ekki í veg fyrir að við getum skilið hvort annað

Youpret var stofnað með það að makrmiði að hjálpa þeim sem standa höllum fæti í samfélaginu okkar. Ef við skiljum ekki hvort annað geta jafnvel einföldustu hlutir orðið að óyfirstíganlegum hindrunum.


Við trúum á mátt fyrirtækja til að stuðla að breytingum. Saman getum við skilgreint ný viðmið er varða ábyrgð fyrirtækja með því að leggja áherslu á markvissar aðgerðir og ótvíræðar niðurstöður í stað innantómra loforða.

Forgangsatriði í viðleitni okkar til sjálfbærni

Markmið okkar er að stuðla að breytingum í átt að betra samfélagi. Samstarf okkar við eftirfarandi hagsmunaaðila gerir okkur þetta einkum kleift.

   Tækifæri fyrir alla til að lifa lífinu sem þeir sækjast eftir
woman working

Við hjálpum öllum sem koma til Finnlands að öðlast hlutverk í finnsku samfélagi. Skilningur er forsenda þess að einstaklingar geti tekið þátt í samfélaginu og uppfyllt grunnþarfir sínar. Túlkarnir okkar hjálpa fólki að segja það sem það vill segja, ekki bara það sem það getur sagt.

Við tökum á móti fólki sem flýr mannskæðar aðstæður og aðstoðum það við að koma undir sig fótunum. Fyrir okkur er mannúð mikilvægasti þáttur samskipta við aðra.

Finnsk fyrirtæki þurfa á fólki af ólíkum uppruna að halda og þar af leiðandi skiptir höfuðmáli að aðstoða fólk við að laga sig að samfélaginu ef Finnland á að vera samkeppnishæft á alþjóðlegum markaði.

Við sinnum yfir 1.200 túlkunum á hverjum degi, á yfir 120 tungumálum. Hjá Youpret starfa túlkar sem hafa sérhæft sig í að túlka fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir áföllum.

  Hlutverk og mikilvægi túlka í samfélaginu

Við bjóðum öllum jöfn atvinnutækifæri, óháð uppruna, kyni eða öðrum einstaklingsbundnum þáttum. Tækni okkar gerir okkur kleift að úthluta túlkunarverkefnum með einföldum hætti.

Við gerum þýðingarmikið starf túlka bæði sýnilegra og metnara að verðleikum. Við erum leiðandi í þróun nýrra staðla fyrir bætt vinnuskilyrði á öllum sviðum túlkunar.

Við bjóðum upp á starfsnám sem hefur gert fjölda einstaklinga hvaðanæva að úr heiminum kleift að finna starf. Við greiðum túlkum sanngjörn laun í gegnum gagnsætt kerfi.

Við hönnuðum okkar eigið fræðsluapp, Youpret Academy, þar sem túlkar okkar geta aukið þekkingu sína á túlkun og öðrum tengdum sviðum, þeim að kostnaðarlausu.

woman with headphones
   Fjölbreytt starfsumhverfi fyrir öll
woman smiling

Á vinnustaðnum okkar fær fjölbreytileiki að blómstra og við leggjum mikið upp úr því að öllum líði vel. Ánægjukönnun sýndi fram á að starfsfólk Youpret er ánægt með andrúmsloft vinnustaðarins, upplifir jafna meðferð og tækifæri til að leggja sitt af mörkum og auka færni, kann vel við tæknina sem við notumst við og álítur starf sitt skipta máli.

Hluti af viðleitni okkar er að sjá einstaklingum fyrir starfi og starfsnámi sem hefðu að öðrum kosti átt erfitt með það (til dæmis innflytjendum og einstaklingum sem hafa verið atvinnulausir lengi).

Youpret leggur ríka áherslu á fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu á öllum sviðum, þar með talið við ráðningar, starfsþjálfun, Youpret Academy og í starfsmannahandbókum.

Sustainable development goals logo

17 sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna mynda viðmiðunarramma sem fyrirtæki geta nýtt sér til að skipuleggja og framkvæma aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri þróun.


Youpret leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi markmið innan rammans:

koulutus icon
työ ja talouskasvu icon
teollisuus ja infra icon
eriarvoisuus icon


Skoðaðu
sjálfbærniskýrsluna okkar

Sjálfbærni er grundvallarþáttur í starfsemi okkar og miðum ávallt að sjálfbærni í daglegum rekstri.


Gagnsæi er okkur afar mikilvægt og því viljum við deila upplýsingum um starfsemi okkar og starfshætti opinberlega. Sjálfbærniskýrslan veitir innsýn í viðleitni okkar til að skapa betri framtíð.

Við erum stolt af því að vera hluti af
alþjóðlegu samfélagi B Corp-vottaðra fyrirtækja


Til að hljóta þessa virtu sjálfbærnivottun gengumst við undir strangt mat þar sem tekið var mið af frammistöðu og gagnsæi samfélagslegrar, efnahagslegrar og umhverfislegrar ábyrgðar okkar.

B Corp-vottunin er þó ekki endamarkið, heldur upphafið á ferðalagi—skuldbindingu okkar til að vera leiðandi afl í átt að jákvæðum breytingum og leita sífellt nýrra leiða til að bæta okkur enn frekar.

couple on blue background

Skuldbinding og samstarf

logo B-Corp
layer logo
suomen yrittajat logo
suomalaista palvelua logo
sky logo
Kauppakamari logo

Skuldbinding og samstarf

logo B-Corp
layer logo
suomen yrittajat logo
suomalaista palvelua
sky logo
Kauppakamari logo

Kynntu þér menningu okkar

Við höfum tekið saman megináherslur vinnustaðamenningar okkar í þar til gerðri handbók. Í handbókinni má nálgast frekari upplýsingar um hvernig við leggjum okkur fram við að stuðla að betra vinnuumhverfi og sanngjarnara samfélagi fyrir öll.

the open book

Einhverjar hugmyndir eða athugasemdir?

Ef þú hefur einhverjar tillögur að endurbótum á sjálfbærnistefnu Youpret hvetjum við þig til að hafa samband við Neu til að koma þeim áleiðis!


nea kolmonen

Nea Kolmonen

Markaðssetningar- og samskiptastjóri

nea.kolmonen@youpret.com

LinkedIn

Nea er markaðssetningar- og samskiptastjóri Youpret. Í starfi sínu hefur hún sérstaklega gaman að því að vinna með samstarfsfólki sínu, túlkum, viðskiptavinum, utanaðkomandi samstarfsaðilum og áhrifavöldum jafnframt því að þróa sjálfbærnistefnu fyrirtækisins og skapa gagnlegt efni. Nea á þrjár dætur og nýtur þess að stunda íþróttir, einkum skíði á vorin.

Lestu meira!