Bókaðu ókeypis kynningu á Youpret-appinu

Bókaðu ókeypis kynningu á Youpret-appinu

Við skipuleggjum ókeypis kynningar fyrir viðskiptavini okkar um notkun Youpret-appsins. Ef þitt fyrirtæki eða stofnun vantar stutta fræðslu um túlkaappið, sem tekur um 30 mínútur, endilega hafðu samband við okkur! Auðvelt er að koma fundum á með stuttum fyrirvara þar sem fræðslan fer fram í gegnum fjarfundarbúnað.

Efni fræðslunnar er sniðið að óskum viðskiptavinarins. Ef þú ert að velta fyrir þér ákveðnum eiginleika appsins, eða ert með spurningar um pöntun á túlkaþjónustu eða Youpret almennt, beinum við sjónum okkar að þeim þáttum.


Ávinningur kynningarinnar


Fræðslan hjálpar viðskiptavinum að innleiða Youpret-appið með greiðum hætti innan alls fyrirtækisins eða stofnunarinnar. Markmiðið er að gera viðskiptavinum eins auðvelt og unnt er að nota túlkaþjónustuna okkar frá upphafi samstarfsins. Þetta kemur einnig í veg fyrir upplýsingaóreiðu innan fyrirtækisins þegar kemur að pöntun túlkaþjónustu.

Kynningin hentar líka vel viðskiptavinum sem hafa notað þjónustuna okkar til lengri tíma. Hægt er að skipuleggja fræðslu fyrir nýja starfsmenn hvenær sem þörf krefur. Það sparar viðskiptavinum okkar tíma sem annars færi í að þjálfa nýtt starfsfólk í notkun appsins og pöntun túlkaþjónustu.


Þú getur bókað kynninguna á tvo vegu:


  1. Bókaðu tíma í bókunardagatalinu.
  2. Hafðu samband beint við verkefnastjóra okkar, Kristján Lundberg, annaðhvort með tölvupósti á info@youpret.is eða í síma 587-3000.

Við þurfum að fá uppgefið heiti fyrirtækis/stofnunar, fjölda þátttakenda og hvenær þið óskið eftir að fundurinn fari fram. Einnig er hægt að halda fræðsluna í gegnum þá fjarfundarþjónustu sem þið kjósið frekar en Google Meet.


Nýttu þér þjónustuna okkar sem best og bókaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki!