Í janúar 2025, samhliða B Corp-sjálfbærnivottun okkar, birtum við fyrstu sjálfbærniskýrsluna okkar, til að standa við fyrirheit okkar um gagnsæi í öllum rekstri okkar og um áhrif okkar á samfélag og umhverfi. En hvað nákvæmlega er sjálfbærniskýrsla og hvers vegna er mikilvægt fyrir fyrirtæki að birta slíkar skýrslur?
Í þessari grein skoðum við grunnatriði skýrslugerðar um sjálfbærni – hvað slík skýrsla er, hvers vegna hún skiptir máli og hvernig hún getur gagnast bæði fyrirtækjum og hagsmunaaðilum. Að lokum kynnum við fyrstu sjálfbærniskýrslu Youpret, sem veitir yfirlit yfir nálgun okkar og þau skref sem við erum að taka í átt að sjálfbærari framtíð.
Hvað er sjálfbærniskýrsla?
Sjálfbærniskýrsla er starfsvenja sem felst í að birta opinberlega upplýsingar um árangur fyrirtækis með hliðsjón af umhverfismálum, samfélagsmálum og stjórnunarháttum (ESG). Þetta felur í sér að safna gögnum og greina þau til að mæla áhrif fyrirtækisins á samfélag og umhverfi og leggja áherslu á varanlegan ávinning sem reksturinn skapar, umfram skammtímahagnað. Skýrslugjöf um sjálfbærni er öflugt verkfæri til að sýna fram á gagnsæi og skuldbindingu við sjálfbæra þróun og auðveldar fyrirtækjum að samræma stefnu sína víðtækari viðmiðum, svo sem heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Þótt ekkert almennt samþykkt sniðmát sé til fyrir sjálfbærniskýrslur eru þær oftast gerðar samkvæmt viðmiðum á borð við heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun og GRI-staðalinn (Global Reporting Initiative) fyrir sjálfbærniskýrslugerð. Algengt er að B-vottuð fyrirtæki, svonefnd kölluð B Corps, byggi skýrslugerðina á B Corp-áhrifaþáttunum fimm og samþætti þá við sjálfbærnimarkmiðin eða GRI-staðalinn, til að veita heildstæða mynd af áhrifunum.
Hvers vegna er sjálfbærniskýrsla mikilvæg?
Reglugerðir verða sífellt strangari og væntingar hagsmunaaðila meiri og skýrslugjöf um sjálfbærni er því ekki aðeins hluti af bestu starfsvenjum, heldur lykilþáttur í rekstri, í því skyni að stjórna áhættu, auka skilvirkni og tryggja jákvæð áhrif á hagsmunaaðila, þar á meðal starfsfólk, viðskiptavini, samstarfsaðila og náttúruna. Eftir því sem loftslagskreppan harðnar og áhrif hennar á fólk og umhverfi verða alvarlegri hafa kröfur samfélagsins um aðgerðir orðið háværari.
Á sama tíma er þrýst á stjórnvöld og fyrirtæki að axla ábyrgð og knýja áfram mikilvægar breytingar. Til dæmis fela margar nýlegar lagabreytingar í einstökum löndum og tilskipun ESB um skýrslugjöf um samfélagslega sjálfbærni (CSRD), í sér kröfu um að stór fyrirtæki og skráð lítil og meðalstór fyrirtæki veiti upplýsingar um umhverfis- og samfélagsleg áhrif sín. Þrátt fyrir að ekki séu öll lítil og meðalstór fyrirtæki lögbundin til að fara eftir þessum reglugerðum eru góðu fréttirnar þær að æ fleiri fyrirtæki, óháð stærð, gera sér ljóst að þau gegna veigamiklu hlutverki við að byggja upp sjálfbæra framtíð. Mörg þeirra hafa því breytt rekstraráherslum sínum í átt að því að mæla, upplýsa um og bæta umhverfisleg og samfélagsleg áhrif sín.
Hvernig hjálpa sjálfbærniskýrslur fyrirtækjum?
Hagsmunaaðilar gera ekki lengur aðeins þá kröfu að fyrirtæki skili hagnaði, heldur krefjast þess einnig að fyrirtæki hafi mælanleg og jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið. Kannanir sýna í auknum mæli að neytendur eru tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir vörur og þjónustu frá fyrirtækjum sem sýna fram á skýra skuldbindingu um sjálfbærni. Samkvæmt könnun Finnska verslunarsambandsins árið 2022 vilja 70% Finna frekar skipta við samfélagslega ábyrg fyrirtæki og 46% eru tilbúin til að greiða meira fyrir vörur og þjónustu slíkra fyrirtækja.
Þetta er í samræmi við viðskiptavinakannanir okkar, þar sem 92% svarenda telja „mjög mikilvægt“ eða „mikilvægt“ að fyrirtæki í túlka- og tungumálaþjónustu sýni ábyrgð gagnvart samfélagi og umhverfi. Þetta undirstrikar hversu mikilvæg sjálfbærni er fyrir viðskiptavini í dag.
Um leið gefur skýrslugerð um sjálfbærni fyrirtækjum skýrari mynd af sjálfbærnivinnu sinni og markmiðum. Það auðveldar þeim að mæla framfarir og setja sér ný og metnaðarfull markmið til framtíðar, í því skyni að vinna stöðugt að umbótum og stefna að sjálfbærni á öllum sviðum.
Hvernig lítur fyrsta sjálfbærniskýrsla Youpret út?
Smelltu á myndina til að sækja sjálfbærniskýrslu Youpret
Youpret fellur sem stendur ekki undir kröfur tilskipunar ESB um skýrslugjöf um samfélagslega sjálfbærni (CSRD), en við höfum þráttfyrir það birt fyrstu sjálfbærniskýrsluna okkar þar sem markmið okkar er að sýna gagnsæi við teljum mikilvægt að öll fyrirtæki taki þátt í þessari þróun.
Til að tryggja samræmi milli fjárhagsskýrslu okkar og sjálfbærniskýrslu ákváðum við að samræma tímaramma beggja skýrslna, sem er tímabilið frá september 2023 til ágúst 2024. Þetta gerir hagsmunaaðilum kleift að kynna sér bæði fjárhags- og sjálfbærnistarf okkar samtímis, fyrir sama tímabil.
Í þessari skýrslu höfum við nýtt okkur áhrifaþætti B Corp, en bætt um betur þau með því að bæta við tveimur hlutum til viðbótar. Auk inngangskafla inniheldur skýrslan því sjö lykilkafla sem fjalla um starfsemi okkar, túlkana, stjórnarhætti, starfsfólk, samfélag, umhverfi og viðskiptavini.
Í hverjum hluta eru töflur sem sýna með skýrum hætti aðgerðir okkar, niðurstöður, áhrif aðgerðanna og þau heimsmarkmið sem aðgerðirnar varða. Þannig eru heimsmarkmiðin samþætt við heildarramma skýrslunnar og rekstursins. Í lok hvers kafla eru svo sett markmið fyrir næsta skýrslutímabil.
Eins og fram kemur er í kaflanum „Starfsemi okkar“ veita helstu rekstarþættir Youpret víðtæka yfirsýn yfir það hvernig Youpret starfar í samræmi við markmið um sjálfbæra þróun. Veigamestu rekstrarþættirnir eru:
1. Þróun Youpret-appsins: aukin skilvirkni og gæði innan túlkunargeirans.
- Þetta gagnast öllum hagsmunaaðilum okkar og miðar að því að mæta heimsmarkmiði 9.1 „Þróaðir verði traustir innviðir, sjálfbærir og sveigjanlegir ... í því skyni að styðja við efnahagsþróun“
2. Að veita hraðvirka túlkaþjónustu sem byggir á hugviti: Miðlunarþjónusta okkar stuðlar að aukinni samfélagslegri þátttöku farandfólks og flóttafólks.
3. Að bjóða atvinnutækifæri fyrir túlka: Stuðningur við sjálfstætt starfandi túlka, túlka í hlutastarfi eða túlka í fullu starfi.
4. Að stuðla að mannsæmandi atvinnulífi: Að byggja upp og viðhalda fjölbreytilegu starfsumhverfi, án áreitni, og tryggja jöfn tækifæri til starfsþróunar.
5. Að veita faglega þjálfun: halda nýliðanámskeið og bjóða upp á ókeypis námskeið í túlkun í Youpret Academy
Ef þú hefur áhuga á að skoða aðra hluta skýrslunnar eða vilt fá dýpri innsýn hvetjum við þig til að lesa skýrsluna alla til að fá heildstæða yfirsýn yfir ferlið okkar!
Þú getur líka farið á heimasíðu okkar um sjálfbærni og vefsíðu B Corp til að fá frekari upplýsingar um skuldbindingu okkar um sjálfbærni.
Höfundur:
Aida Jodeiri
Samfélagsábyrgðarverkefnastjóri
aida.jodeiri@youpret.com
LinkedIn
Aida has a master's degree in Environmental Policy and Law from the University of Eastern Finland and her first master's degree is in human rights law. At Youpret, she has focused on topics related to sustainability and sustainability reporting as well as interpreter and customer satisfaction surveys. In her free time, Aida likes to dance and play badminton.