Við erum fyrsta B Corp-vottaða tungumálaþjónustan á Norðurlöndunum! - Viðleitni okkar til sjálfbærni

Við erum fyrsta B Corp-vottaða tungumálaþjónustan á Norðurlöndunum! - Viðleitni okkar til sjálfbærni

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að eftir rúmlega eins árs langt ferli höfum við gengið til liðs við hóp yfir 9.000 B Corp-vottaðra fyrirtækja um allan heim! Átta önnur fyrirtæki í Finnlandi hafa nú þegar hlotið B-vottun. Það gleður okkur að sjá að fyrirtækjum sem setja sjálfbærni í forgang fjölgar með degi hverjum!

Hvað tungumálaþjónustu varðar er Youpret leiðandi á sviði sjálfbærni. Við erum stolt af því að vera fyrsta tungumálaþjónusta bæði Finnlands og Norðurlandanna til að hljóta vottun B Corp. Við stöndum í þeirri trú að aðgangur að túlkum hafi jákvæð áhrif á samfélög og að tungumálaþjónusta á borð við okkar geti stuðlað enn frekar að jákvæðum áhrifum með viðleitni til sanngirni, gagnsæis og ábyrgðar á öllum sviðum reksturs.



Hvers vegna hlutum við vottun?

Fyrir okkur hjá Youpret er sjálfbærni ekki einhver tískubóla heldur óaðskiljanlegur hluti af uppbyggingu fyrirtækisins. Allt frá upphafi hafa sanngirni, fjölbreytni og gagnsæi verið lykilgildi fyrirtækisins. Eftir því sem fyrirtækið stækkaði stóðum við fast við gildi okkar og tókum vandlega ígrundaðar ákvarðanir um áframhaldandi þróun þjónustu okkar. Ferli B Corp gerði okkur hins vegar kleift að gangast undir mat þriðja aðila, sem hjálpaði okkur að skipuleggja og styrkja nálgun fyrirtækisins á sjálfbærni.

Til að geta hafið ferli B Corp þurfa fyrirtæki að byggja á sjálfbærum grunni. Staðfesting á slíkum grunni fæst með því að ná að lágmarki 80 stigum í áhrifamati (B Impact Assessment, BIA). Áhrifamatið samanstendur af um það bil 200 spurningum sem skiptast í fimm flokka: stjórnarhættir, starfsfólk, samfélag, umhverfi og viðskiptavinir. Ef fyrirtæki ná lágmarkseinkunn í áhrifamatinu geta þau greitt upphafsgjald og hafið vottunarferli B Corp. Það tók okkur um það bil 13 mánuði að ljúka ferlinu. Hægt er að lesa nánar um áhrifamatið og skrefin sem Youpret lauk í fyrsta kafla „Viðleitni okkar til sjálfbærni“.


infographic



Næstu skref að loknu mati.

Eftir að hafa beðið þar til röðin var komin að okkur á staðfestingarstigi B Corp þurftum við að leggja fram ýmis skjöl svörum okkar við áhrifamatinu til stuðnings. Tveir greiningaraðilar fóru síðan yfir svörin okkar með hliðsjónar af skjölunum. Á þessu stigi breyttist einkunn okkar nokkrum sinnum. En þrátt fyrir að missa nokkur stig vorum við vel yfir meðaleinkunn. Við teljum að einkunnin okkar skapi traustan grundvöll fyrir áframhaldandi vegferð okkar til sjálfbærni. Við teljum að hið stranga mat sem liggur að baki B Corp-vottuninni aukið áreiðanleika okkar, þar sem fyrirtæki þurfa að sýna fram á raunverulega skuldbindingu til að uppfylla vottunarviðmiðin.

Eftir að einkunn okkar var staðfest undirrituðum við samning um B Corporation-vottun og skuldbundum okkur til að uppfylla kröfur og skilmála samningsins, greiddum tilskilið gjald og fengum B Corp-vottorðið í hendur.

Samhliða þátttöku okkar í B Corp-ferlinu á síðasta ári höfum við verið að undirbúa fyrstu sjálfbærniskýrslu Youpret! Sjálfbærniskýrslan sem endurspeglar skuldbindingu okkar um gagnsæi, inniheldur greinargóða lýsingu á starfsemi okkar og ítarlegar upplýsingar um B Corp-einkunn okkar á mismunandi matssviðum. Skýrslan var nýlega birt og er nú aðgengileg til niðurhals. Hér eftir verður hægt að skoða hana á síðunni um sjálfbærni á vefsvæðinu okkar.



Við höldum ótrauð áfram!

Raunin er sú að fyrir okkur er B Corp-vottunin aðeins fyrsta skrefið. Þótt við séum ánægð með að starf okkar hafi þegar tryggt okkur sjálfbærnivottun hefur slíkt vottorð aldrei verið lokamarkmiðið í okkar augum. Í gegnum B Corp-ferlið uppgötvuðum við nýja aðferðir til að þróa starfsemi okkar á sjálfbærari hátt. Við lærðum mikilvægi þess að skrá og skjalfesta alla okkar verðmætu þjónustuþætti. Auk þess kynntum við okkur félagslegarhliðar sjálfbærni og fundum góðar leiðir til að virkja hagsmunaaðila okkar enn frekar, um leið og við leitumst stöðugt við að gera Youpret að enn betri vinnuveitanda og samstarfsaðila.

Endurnýja þarf B Corp vottunina á þriggja ára fresti, sem er í fullu samræmi við nálgun okkar á sjálfbærni. Fyrir okkur snýst sjálfbærni ekki bara um að fá eitt vottorð, í eitt skipti. Við erum staðráðin í að vera sífellt að bæta okkur og hafa sjálfbærni að leiðarljósi í daglegum rekstri okkar.

„Það er hið besta mál að styrkja samtök á sviði félagsmála og umhverfismála af og til, en við viljum ganga skrefi lengra. Markmið okkar er að ná fram markvissum og varanlegum áhrifum með því að samþætta sjálfbærni við daglegan rekstur okkar.“ Aida Jodeiri, samhæfingarstjóri sjálfbærni hjá Youpret.


Komdu með okkur í ferðina!

Okkur er mikil ánægja að halda áfram að sinna þessum mikilvæga verkefni og hvetja aðra til að taka þátt! Finnskt samfélag þarfnast fleiri fyrirtækja sem setja ábyrgð í forgang í sínum rekstri. Við viljum undirstrika mikilvægi þess að fyrirtæki starfi á ábyrgari hátt en áður og gera okkar viðskiptavini meðvitaða um þetta.

Þar sem sjálfbærnivottorð þriðja aðila, svo sem B Corp, er áreiðanlegt vottorð viljum við, hvar sem því verður við komið, velja samstarfsaðila okkar meðal þeirra sem eru hafa hlotið sambærilega vottun eða hafa skuldbundið sig til að fylgja viðmiðum þriðja aðila um sjálfbærni. Auk þess vonumst við til þess að æ fleiri læri að meta og kjósi að skipta við fyrirtæki sem taka eigin ákvörðun um skuldbindingar sem skila ekki aðeins hagnaði fyrir hluthafana heldur einnig fyrir samfélag og umhverfi.

Frekari upplýsingar um B Corp og einkunnina okkar er að finna á vefsíðunni um B Corp. Þú getur sótt sjálfbærniskýrsluna okkar 2023-2024 og skoðað síðuna um sjálfbærni á vefsvæðinu okkar..



Höfundur:

Aida Jodeiri

Aida Jodeiri

Samfélagsábyrgðarverkefnastjóri

aida.jodeiri@youpret.com

LinkedIn

Aida has a master's degree in Environmental Policy and Law from the University of Eastern Finland and her first master's degree is in human rights law. At Youpret, she has focused on topics related to sustainability and sustainability reporting as well as interpreter and customer satisfaction surveys. In her free time, Aida likes to dance and play badminton.