Youpret er nú aðili að rammasamningi ríkisins fyrir túlka- og þýðingaþjónustu

Youpret er nú aðili að rammasamningi ríkisins fyrir túlka- og þýðingaþjónustu

Frá og með 8. september 2026 hafa opinberar stofnanir um allt land sem og starfsfólk Landspítala Háskólasjúkrahúss haft hnökralausan aðgang að hagkvæmri túlkaþjónustu Youpret, hvort sem ætlunin er að fá túlka á staðinn eða nýta sér þann sparnað sem felst í fjartúlkun.


Reykjavík, 23. september 2026.

Youpret, sem er leiðandi í túlkaþjónustu í Finnlandi, er aðili að nýjum rammasamningi um túlkaþjónustu fyrir hið opinbera á Íslandi. Samningurinn nær til íslenskra ríkisstofnana og Landspítala og er liður í áframhaldandi uppbyggingu starfsemi Youpret á Norðurlöndunum.

Youpret mun starfa innan innkaupahluta C (samfélagstúlkun) og E (rafræn og símatúlkunarþjónusta). Fjartúlkun hefur fest sig í sessi sem einkar hagkvæm, einföld og aðgengileg lausn víða um heim og sífellt fleiri opinberir aðilar nýta sér hana í daglegri þjónustu. Til dæmis fara nú 86% allra túlkunarverkefna í Helsinki fram í fjartúlkun, sem sýnir mikilvægi stafrænna lausna í opinberri þjónustu (Slator, 2023). Þessi þróun byggir meðal annars á aukinni hagkvæmni, verulegum tímasparnaði og bættri persónuvernd þátttakenda.

Túlkar Youpret fylgja ströngum siðareglum fyrir samfélagstúlkun, hvort sem túlkunin fer fram í gegnum síma, með myndsímtali eða á staðnum. Youpret sinnir daglega yfir 1.000 túlkunarverkefnum í Finnlandi, meðal annars fyrir heilbrigðiskerfið, menntakerfið og vinnumiðlanir og byggir þjónustu sína á Íslandi á þeirri umfangsmiklu reynslu.

„Starfsfólk Youpret hlakkar til að bjóða íslenskum aðilum upp á öflugan og notendavænan túlkunarvettvang okkar. Þótt áfram verði hægt að fá túlk á staðinn teljum við að íslenskir aðilar verði fljótir að koma auga á kosti fjartúlkunar. Þegar búið er að taka út ferðatíma greiða viðskiptavinir aðeins fyrir þann tíma sem fer í sjálfa túlkunina. Um leið fá túlkar meiri sveigjanleika í skipulagningu og geta tekið að sér fleiri verkefni ef þeir kjósa,“ segir Guðmundur Freyr Magnús, framkvæmdastjóri Youpret á Íslandi.

Fjartúlkun hefur í för með sér skýran ávinning fyrir bæði viðskiptavini og túlka:

  • Enginn ferðakostnaður og enginn ólaunaður ferðatími fyrir túlka.
  • Betri nýting á tíma og aukinn sveigjanleiki til að taka að sér fleiri verkefni.
  • Hagkvæmari og fyrirsjáanlegri kostnaður fyrir viðskiptavini.
  • Aukin persónuvernd í litlum samfélögum þar sem túlkar og þeir sem nota þjónustuna kunna að þekkjast.

Árið 2024 náði Youpret hinni virtu B Corp-vottun sem undirstrikar skuldbindingu fyrirtækisins um hnattræna sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. Auðvelt er að nýta sér túlkaþjónustu Youpret í gegnum vefinn á Youpret (youpret.is) eða í ókeypis Youpret-appinu, sem hægt er að sækja á Google Play og Apple App Store.


Nánari upplýsingar:

Guðmundur Freyr Magnús
Framkvæmdastjóri
Youpret á Íslandi
+354 823 55 66


Youpret í stuttu máli:
Youpret er fyrirtæki sem sérhæfir sig í túlkaþjónustu og máltækni. Markmið Youpret er að bjóða upp á sjálfbærari tungumálaþjónustu og vera fyrsti kostur bæði fagfólks og endanotenda – þar sem áherslan er á traust, gæði og samstarf. Youpret-appið sameinar allar túlkanir á einum stað svo viðskiptavinir hafi alltaf yfirlit yfir þjónustu og kostnað. Hjá Youpret fá viðskiptavinir aðgang að stækkandi neti fagtúlka og geta bókað túlk fyrirfram eða fengið samband við túlk samstundis í gegnum fjartúlkun – allan sólarhringinn. Þjónustan er í boði í Finnlandi, á Íslandi og í Eystrasaltsríkjunum.