Fjórar ástæður til að prófa fjartúlkun

Fjórar ástæður til að prófa fjartúlkun | Youpret

Víða erlendis er fjartúlkun orðin hversdagslegur og eðlilegur hluti af því að tryggja aðgengi að tungumálum. Á Íslandi gegnir staðartúlkun hins vegar enn lykilhlutverki.

Vissulega munu alltaf koma upp aðstæður þar sem réttast er að hafa túlk á staðnum. En þegar kemur að hversdagslegri túlkaþjónustu getur fjartúlkun falið í sér gríðarlega kosti, bæði fyrir viðskiptavini og túlka.

Við hjá Youpret höfum fylgst með þessari þróun af eigin raun í Finnlandi. Áður nýttu finnsk stjórnvöld sér nánast eingöngu staðartúlkun, en í heimsfaraldrinum reyndi á fjartúlkun í miklum mæli. Þá kom í ljós að hún gerir þjónustuna hraðari, sveigjanlegri og mun hagkvæmari – án þess að slá neitt af gæðum.

Svo, hvers vegna ættir þú að prófa fjartúlkun?


1. Aukin hagkvæmni og stærri hlutur til túlka

Ferðalög taka ekki aðeins tíma; þau kosta líka peninga. Staðartúlkun fylgir oft aksturskostnaður og aukagjöld vegna ferðatíma túlksins. Fjartúlkun getur dregið verulega úr þessum kostnaði. Fyrir stofnanir sem nýta túlkaþjónustu mikið getur þessi munur orðið gífurlegur.

Fjartúlkun gerir kostnaðinn einnig mun fyrirsjáanlegri. Í stað þess að greiða fyrir umstangið í kringum verkefnið, geta stofnanir einbeitt fjármagni sínu að túlkuninni sjálfri. Með því að velja fjartúlkun er háu þjónustustigi viðhaldið en um leið er tæknin nýtt til að veita faglega túlkun á skilvirkari hátt. Hið skilvirka milligöngukerfi Youpret tryggir jafnframt að túlkar okkar fá stærri hlut af greiðslu viðskiptavinarins samanborið við hefðbundna þjónustuaðila.


2. Sparar tíma fyrir bæði viðskiptavini og túlka

Tökum sem dæmi 30 mínútna túlkunarbókun. Við staðartúlkun tekur sjálft verkefnið aðeins hálftíma, en túlkurinn gæti þurft að verja talsvert meiri tíma í að ferðast til og frá staðnum. Með fjartúlkun er hægt að nýta allan þennan tíma í eiginlega túlkun.

Fyrir stofnanir gerir þetta skipulagningu mun einfaldari, sveigjanlegri og hagkvæmari. Það þarf hvorki að samræma ferðalög né gera ráð fyrir aukatíma á meðan beðið er eftir túlkinum. Þú borgar einfaldlega fyrir tungumálakunnáttuna sem túlkurinn veitir, en ekki fyrir eknu kílómetrana.

Fyrir túlkana þýðir minni ferðatími að þeir geta varið stærri hluta vinnudagsins í það sem þeir eru þjálfaðir til að gera. Túlkur getur fært sig á milli fjartúlkunarverkefna án þess að ferðast á milli staða. Þetta gerir þeim kleift að taka að sér fleiri verkefni yfir daginn ef þeir kjósa svo. Þetta skapar einnig meiri sveigjanleika. Túlkar geta tekið að sér verkefni alls staðar að af landinu, óháð því hvar þeir búa.


3. Fjartúlkun virkar vel í krefjandi opinberri þjónustu

Fjartúlkun er ekki bundin við einföld eða tilfallandi samtöl. Finnland er frábært dæmi um það hversu vel er hægt að innleiða fjartúlkun í opinbera þjónustu. Samkvæmt útgáfunni Slator, sem sérhæfir sig í tungumálageiranum, fara um 86% allrar túlkunar hjá Helsinki-borg fram í gegnum fjartúlkun. Um 80% af þeirri túlkaþjónustu sem borgin nýtir fer fram í félags- og heilbrigðiskerfinu, þar á meðal á sjúkrahúsum, í skólum og í móttökumiðstöðvum fyrir innflytjendur. Þetta eru umhverfi þar sem skýr og áreiðanleg samskipti eru algjörlega lífsnauðsynleg.

Dæmið frá Helsinki sýnir að fjartúlkun getur orðið eðlilegur hluti af daglegri þjónustu, jafnvel hjá stofnunum sem sjá um mikinn fjölda verkefna og glíma við mjög fjölbreyttar aðstæður. Stofnanir geta nýtt sér bæði fjar- og staðartúlkun af miklum sveigjanleika og valið þá leið sem hentar best hverju sinni.

Lestu meira um hvernig atvinnumálaþjónustan í Espoo og velferðarsvið Suðvestur-Finnlands hafa nýtt sér fjartúlkun frá Youpret.


4. Betri vinnuaðstæður fyrir túlka og aukin persónuvernd fyrir skjólstæðinga

Fjartúlkun getur einnig bætt vinnuskipulag túlka. Án óþarfa ferðalaga á milli verkefna geta túlkar nýtt vinnutímann mun betur og hugsanlega tekið að sér fleiri verkefni. Þeir geta einnig þjónustað viðskiptavini yfir mun stærra landsvæði, sem skiptir sérstaklega miklu máli á smærri mörkuðum og í minni samfélögum.

En það er annar mjög mikilvægur kostur: Persónuvernd. Í tiltölulega litlu landi eins og Íslandi getur vel verið að túlkur og skjólstæðingur þekkist persónulega eða tilheyri sama nærsamfélagi. Fjartúlkun veitir þjónustuaðilum aðgang að túlkum utan síns nærumhverfis. Þannig er auðveldara að forðast aðstæður þar sem persónuleg tengsl gætu gert samskiptin óþægileg fyrir skjólstæðinginn.

Við hjá Youpret trúum því að tæknin eigi að gagnast báðum aðilum. Skilvirkari þjónusta þýðir auðveldara aðgengi og fyrirsjáanlegri kostnað fyrir viðskiptavini, um leið og hún skapar sveigjanlegri atvinnutækifæri fyrir faglega túlka.


Gæti fjartúlkun hentað þinni stofnun eða fyrirtæki?

Fjartúlkun vinnur snurðulaust með staðartúlkun og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir ólíkar aðstæður. Stofnanir og fyrirtæki geta metið hverju sinni af miklum sveigjanleika hvenær vænlegra sé að nota staðartúlk, eða hvort fjartúlkun sé jafn áhrifarík lausn.

Þessi nálgun er þegar mikið notuð í Finnlandi. Reynsla okkar sýnir að um leið og viðskiptavinir prófa fjartúlkun, uppgötva margir fljótt þau þægindi, þann sveigjanleika og þá hagkvæmni sem hún hefur upp á að bjóða.

Youpret býður upp á bæði fjar- og staðartúlkun eftir pöntun á Íslandi.

Af hverju ekki að láta reyna á fjartúlkun næst þegar þig vantar túlk?


Viðskiptavinahandbók um fjartúlkun

Hvað þarf að hafa í huga fyrir, á meðan og eftir fjartúlkun? Sæktu handbókina okkar ókeypis og uppgötvaðu kosti fjartúlkunar í dag!